fimmtudagur, 17. maí 2007

Skrapp










Þetta er opna sem ég gerði um fæðingu yngri dótturinnar fyrir F.Á.B. (Fyrsta ár barnsins). Hún olli mér miklum heilabrotum og ég varð eiginlega að beita mig hörðu til að gera hana, því ég var svo hrædd um að gera hana vitlaust. Á endanum rökfærði ég þetta svona við sjálfa mig: Þú getur alltaf framkallað myndirnar aftur og gert þetta upp á nýtt... Það dugði, en þrátt fyrir það fór næstum allur dagurinn í gær í þetta. Ég er nokkuð ánægð með árangurinn...

6 ummæli:

stína fína sagði...

þú mátt bara vera mjög ánægð með þær, alveg æðislegar síður :O)

Sara sagði...

æðislegar síður, allur þessi pp kemur ekkert smá vel út saman :)

Kveðja Sara

Just Thoughts sagði...

Rosalega fallegar síður. þessi pp er algert bjútí.
Skil þig svo vel að eiga erfitt að gera opnu sem þarf að vera fullkomin.

Helga sagði...

æðislega fallegar :) og til hamingju með bloggið :)

hannakj sagði...

vá ógó flott opna! geggjaður grænn pp! Yndislegar myndir!

MagZ Mjuka sagði...

Mér finnst þær æðis hjá þér! :)